Jæja, nú eru áramótin að ganga í garð og fólk eflaust sveitt við að setja niður áramótaheit fyrir árið 2010. Held að ég sleppi því bara og setji frekar inn 100 hluti sem ég ætla að gera áður en ég hverf af þessari kúlu
1. Fara á stóran íþróttaviðburð (Ólympíuleikana, Super Bowl, heimsmeistaramót o.s.frv).
2. Halda risa partý
3. Synda með höfrungum
4. Fara í fallhlífastökk
5. Læra nýtt tungumál
6. Fara í nektarsund (skinny-dipping)
7. Eyða heilum degi í sukk án þess að fá samviskubit
8. Vera aukaleikari í kvikmynd
9. Eignast barn
10. Læra að taka hrósi
11. Fara í safarí í Afríku
12. Læra á snjóbretti
13. Senda flöskuskeyti
14. Eignast hús
15. Læra að segja nei
16. Gróðursetja tré
17. Skrifa aðdáendabréf til uppáhalds stjörnunar minnar
18. Læra samkvæmisdansa
19. Verða ástfangin
20. Standa á Kínamúrnum
21. Skrifa skáldsögu
22. Sigla um Karabískahafið
23. Syngja í karókí
24. Vera fyrirmynd
25. Fara í tegjustökk
26. Kenna einhverjum eitthvað nýtt
27. Fara á Októberfest
28. Biðja um launahækkun
29. Fara í bakpokaferð um Evrópu
30. Gista í kastala
31. Hitta eina fræga manneskju
32. Fyrirgefa sjálfri mér
33. Sjá tunglmyrkva
34. Óska mér við stjörnuhrap
35. Eyða gamlárskvöldi í útlöndum
36. Fara í helgar/dekurferð í sumarbústað
37. Fara í Þórsmörk
38. Sinna sjálfboðaliðastörfum
39. Upplifa þyngdarleysi
40. Bjóða einhverjum ókunnugum á stefnumót
41. Gera mig að fífli
42. Gera erfðaskrá
43. Sofa undir berum himni
44. Ferðast um Amazon-frumskóginn
45. Kafa í Grate Barrier Reef í Ástralíu
46. Fara í stærsta rússíbana í heiminum
47. Fara á Kjötkveðjuhátíð í Brazilíu
48. Læra að juggla þremur boltum
49. Finna draumastarfið
50. Gerast líffæragjafi
51. Fara í flúðasiglingu í Mikla-Gljúfri
52. Gefa til góðgerðamála
53. Fara í tívolí
54. Eyða 6 mánuðum í að koma mér í æskilegt form
55. Keyra blægjubíl með blægjuna niðri
56. Eignast gæludýr
57. Taka sjálfa mig í sátt
58. Halda opinbera ræðu
59. Fara á stóra rokktónleika
60. Fara í loftbelg
61. Kyssa einhvern ókunnugan
62. Spila í spilavíti í Las Vegas
63. Kyssa Blarney-steininn
64. Sjá Stone Henge
65. Gera fjölskyldutréið mitt
66. Fara holu í höggi
67. Syngja þjóðsönginn
68. Vinna í lottó
69. Eignast motorhjól og geta keyrt það
70. Labba upp á jökul
71. Fara á norður- eða suðurpólinn
72. Hitta jólasveininn
73. Verða vitni að kraftaverki
74. Vera á tveimur stöðum í einu
75. Lesa 10 best skáldverk sögunnar
76. Sjá allar Óskarsverðlaunakvikmyndirnar
77. Læra ljósmyndun
78. Fara á alvöru grímuball
79. Vera til staðar fyrir einhvern
80. Eiga rauðan spandexgalla
81. Fara á hundasleða
82. Búa til listaverk
83. Hanna vefsíðu
84. Fara í rómantíska ferð til útlanda
85. Tala inn á teiknimynd
86. Læra að dansa magadans
87. Lesa Silmarillinn eftir Tolkien
88. Fara í göngu upp á hálendið
89. Læra á brimbretti
90. Byggja bjálkahús
91. Gista á fimm stjörnu hóteli
92. Auðvelda einhverjum lífið
93. Finna sjálfa mig
94. Bjarga mannslífi
95. Fara í klettaklifur
96. Læra að fljúga flugvél
97. Halda matarboð með mexíkósku þema
98. Baka sörur
99. Sjá engil
100. Komast að leyndarmáli lífsins